Arctic Trucks Island

Myndagallerý »

 

Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í breytingar fyrir Hyundai Terracan.

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.

 



35" breyting

Þegar sett eru 35" dekk undir jeppa er í flestum tilfellum eingöngu þörf á upphækkun á fjöðrun eða bæði á fjöðrun og yfirbyggingu. Við þessa stærð dekkja eru settir nýir brettakantar á bílinn sem breyta útliti hans heilmikið. Bíllinn hækkar tölvuvert en þó ekki það mikið að flestum farþegum finnist hækkunin upp í jeppann til óþæginda. Þessi breyting er mjög góður kostur fyrir þá sem vilja öflugan bíl til fjallaferða að sumri til og aukna drifgetu í snjó.

  • Bíllinn hækkar undir lægsta punkt
  • Mýkri akstur á grófum vegum
  • Aukið flot
  • Útlitsbreyting

Aukahlutir fyrir Hyundai Terracan:

  • Loftdælusett með slöngu fest í bílinn (rofi, relay 16 Amp)
  • Ryðfrí póleruð grillgrind með festingum fyrir aukaljós
  • Kastarar KC 130W - króm/ryðfrítt (punktljós eða dreifður geisli)
  • Húddhlíf (frá árgerð 2003)
  • Ljósahlífar (frá árgerð 2003)
  • Húdd og ljósahlífar í setti
  • Dráttarbeisli, prófíl með kúlu
  • Negling á dekkjum (12/15 naglar)
  • Álkassi í farangursgeymsluna
  • Gólffestingar (2x0,5 m) úr áli með 4 færanlegur festingum
  • Koni demparar að framan og aftan
  • Stífari gormar að aftan

Kynnu þér nánar aukahlutaúrvalið okkar undir vöruflokkunum hér vinstra meginn á síðunni.

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.


Íhlutir breytingapakkans

  • 35x12,5R17 dekk
  • 17x10" álfelgur
  • Átaksmælir
  • Málaðir brettakantar
  • Gangbretti og gangbrettafestingar
  • Aurhlífar
  • Hraðamælabreytir
  • 50 mm hækkun á yfirbyggingu
  • 37 mm hækkun á fjöðrun framan/aftan
  • Úrklipping úr hjólskálum framan/aftan
  • Slökkvitæki
  • Sjúkrapúði
  • Hjólastilling
  • Sérskoðun
  • Vigtun.
  • Arctic Trucks krómmerki á afturhlera

Einnig er hægt að nota 15x10 álfelgur og 35x12,5R15 dekk




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir