Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í breytingar fyrir Mitsubishi Pajero
Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.
35" breyting
Þegar sett eru 35" dekk undir jeppa er í flestum tilfellum eingöngu þörf á upphækkun á fjöðrun eða bæði á fjöðrun og yfirbyggingu. Við þessa stærð dekkja eru settir nýir brettakantar á bílinn sem breyta útliti hans heilmikið. Bíllinn hækkar tölvuvert en þó ekki það mikið að flestum farþegum finnist hækkunin upp í jeppann til óþæginda. Þessi breyting er mjög góður kostur fyrir þá sem vilja öflugan bíl til fjallaferða að sumri til og aukna drifgetu í snjó.
- Bíllinn hækkar undir lægsta punkt
- Mýkri akstur á grófum vegum
- Aukið flot
- Útlitsbreyting
Aukahlutir fyrir Mitsubishi Pajero:
- Felgur
- Ryðfrí póleruð grillgrind með festingum fyrir aukaljós
- Kastarar
- Húddhlífar
- Gluggavindhlífar
- Ljósahlífar
- Come-Up Spil
- Loftdælur
- Álkassa í farangursrými
- o.fl.
Kynnu þér nánar aukahlutaúrvalið okkar undir vöruflokkunum hér vinstra meginn á síðunni.
Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.
Íhlutir breytingapakkans
- 35x12,5R17 dekk
- 17x10" álfelgur
- Átaksmælir
- Málaðir brettakantar
- Gangbretti
- Aurhlífar
- Hraðamælabreytir
- 40 mm hækkun á fjöðrun framan/aftan
- Úrklipping úr hjólskálum framan/aftan
- Slökkvitæki
- Sjúkrapúði
- Hjólastilling
- Sérskoðun
- Vigtun
- Arctic Trucks krómmerki á afturhlera