Arctic Trucks Island
 

Myndagallerý »

 

Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í breytingar fyrir Nissan Patrol

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.

 



38" breyting

Til að koma 38" dekkjum undir jeppann er hann í flestum tilfellum hækkaður upp bæði á fjöðrun og yfirbyggingu en í einstaka tilfellum leyfir upphækkun á fjöðrum það mikið að ekki verður þörf fyrir hækkun á yfirbyggingunni. Útlitsbreyting verður mikil við breiða brettakanta og upphækkunina. 38" dekkin skila miklu floti fyrir snjóakstur sem dugar öllum nema þyngstu jeppunum. Þessi breyting hentar þeim sem vilja eiga öflugan jeppa til hálendis- og jöklaferða að sumar- og vetrarlagi.

  • Bíllinn hækkar undir lægsta punkt
  • Mýkri akstur á grófum vegum
  • Aukið flot
  • Útlitsbreyting
  • Fjalla- og jöklaferðir að vetrarlagi

Aukahlutir fyrir Nissan Patrol:

  • Driflæsing í framhásingu (ARB loftlæsing)
  • Auka olíutankur með rofa og dælu
  • Ryðfríar póleraðar grillgrindur með festingum fyrir aukaljós
  • Plólýhúðuð grillgrind með drullutjakkssætum
  • Loftdælusett með slöngu fest í bílinn (rofi, relay 16 Amp)
  • Kastarar KC130W - króm/ryðfrítt (punktljós eða dreifður geisli)
  • 3" pústkerfi
  • Húddhlífar
  • Gluggavindhlífar
  • Ljósahlífar
  • Glugga-, húdd- og ljósahlífar í setti
  • Vindskeið á afturhlera í sama lit og bíllinn (gengur ekki með stiga á afturhlera)
  • Stigi á afturhlera (gengur ekki með vindskeið)
  • Dráttarbeisli, prófíl með kúlu og drullutjakkssætum
  • Negling á dekkjum (12/15 naglar)
  • Toppgrind, langbogar
  • Toppgrind úr áli með festingum fyrir skóflu og drullutjakk
  • Álbox á toppgrind/i í farangursgeymsluna
  • Álkassi á afturhlera
  • Gólffestingar (2x0,5 m) úr áli með 4 færanlegum festingum
  • Spilfesting að framan
  • Lækkun á gólfi fyrir farþega í 3ju sætaröð
  • Raftengi framan og aftan fyrir spil
  • Spil, Come-Up 9000i (4100 kg)
  • Skriðgír

Kynnu þér nánar aukahlutaúrvalið okkar undir vöruflokkunum hér vinstra meginn á síðunni.

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.


Íhlutir breytingapakkans

  • AT405 38" dekk
  • Prime 15x12,5" álfelgur
  • Átaksmælir
  • Málaðir brettakantar
  • Gangbretti og gangbrettafestingar
  • Aurhlífar
  • Hraðamælabreytir
  • 100 mm hækkun á fjöðrun fr./aftan
  • Fjöðrunarsvið aukið um 40 mm
  • Tvöfaldur liður í drifskaft
  • Stillanleg togstöng 
  • Úrklipping úr hjólskálum framan/aftan
  • Drifhlutföll (5,13:1)
  • Slökkvitæki
  • Sjúkrapúði
  • Hjólastilling
  • Sérskoðun
  • Vigtun
  • Arctic Trucks krómmerki á afturhlera




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir