Hersla á felgum
Reynsla hefur sýnt að nauðsynlegt er að fylgjast reglulega með herslu á felgum undir jeppum.
Eftirfarandi atriði eru mjög mikilvæg við herslu á felgum:
- Mikilvægt er að endurherða felgurær eftir um það bil 200 km frá ásetningu.
- Hámarkshersla á felguróm skal ætíð vera eftir leiðbeiningum framleiðanda bílsins.
- Herða þarf felgurær með herslumæli. Ofhersla í eitt skipti eyðileggur felguboltana.
- Þrífið felgur og bremsuskálar áður en hjólið er sett á.
- Smyrjið aldrei felgubolta eða felgurær því þá geta rærnar losnað af.
- Herðið rærnar alltaf í kross eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd.
- Fylgist með á dekkjaverkstæðum að sá sem er að vinna við að skipta um dekk og felgur fari eftir leiðbeiningum
Hersla / Torque
Land Cruiser STW/LC100 - álfelgur/alloy wheels - 10,5kg/m max. stálfelgur/steel wheels - 15kg/m max.
Land Crusier 90, Hilux, 4Runner, Rav4 - álfelgur og stálfelgur/alloy wheels and steel wheels - 11kg/m max.