Hellisheiði að Núpafjalli
Ekið er af veginum yfir Hellisheiði til suðurs skömmu eftir að komið er upp fyrir Hveradalabrekkuna (Skíðaskálabrekkuna) (GPS N64 01 113 W21 21 603) inn á gamla veginn yfir Hellsheiði við Smiðjulaut. Síðan er ekið eftir honum rúma 5 kílómetra þar til komið er að vegamótum. Er þá tekinn vegurinn til hægri stuttan spöl. Það er líklega eldri vegur, yfir Hellisheiði sem lá suður fyrir Urðarás (Hurðarás)Síðan er beygt inn á veg frá stríðsárunum. Sem liggur til hægri upp á lágt fjall sem heitir Núpafjall (GPS N64 00 385 W21 15 150).
Núpafjall stendur á hálendisbrúninni fyrir ofan Ölfusið 313 metra yfir sjávarmáli, en rís einungis um 50 metra yfir heiðina og er því mun myndarlegra austan frá séð og mikill útsýnisstaður. Fljótlega er komið að vegamótum. Liggur vegur til hægri en rofnar fljótlega og er þar alveg ófært. Vegur þessi lá vestur af fjallinu, niður í dalkvos. Sjást þar leifar af mörgum byggingum. Þarna var herkampur á stríðsárunum. Hermennirnir höfðu eftirlit með veginum yfir Hellisheiði en á fjallinu voru loftvarnabyssur til að verja flugvöllinn í Kaldaðarnesi. Ef haldið er áfram veginn suður fjallið, endar hann í grösugri kvos sunnan undir því, en hjólför liggja fram á brúnir í grónu hrauni. Aka verður sömu leið til baka af Núpafjalli, en síðan er hægt að aka gamla veginn um Kamba. Ef menn kæra sig ekki um það, er hægt að fara inn á veginn sem liggur um Urðarhálsinn og er þá afleggjari í norður (GPS N64 00 461 W21 15 304) sem endar hann á malbikaða veginum um Hellisheiði (GPS N64 00 774 W21 15 377) Kort Blað 37 Hengill.