Þrengslavegur
Ekið er af Þrengslavegi í austur við suðurhorn Litla-Meitils (GPS N63 57 721 W21 27 046) í gegn um dálítitlar malarnámur, og síðan milli hrauns og hlíða. Eftir að hafa ekið dálítinn spotta komum við að trjáreit. Hér girti og plantaði Einar Ólafsson sem lengi vann í Rafgeymaþjónustunni Pólum, barrtrjám og Birki. Girðingaefni og plöntur bar hann á sjálfum sér frá þjóðveginum því engan bíl átti hann. Við ökum nú í norð-austur inn með hlíðinni og komum á töluvert víðáttumiklar grassléttur. Síðan liggur slóðinn austur fyrir Litla-Meitil og við blasir Eldborg og ástæða slóðans. Hér eru efnisnámur en langt virðist vera síðan þær voru í notkun. Menn hafa verið að aka á Eldborgina og er slóði þar upp. Æskilegra væri að menn gengju þar upp og virtu fyrir sér útsýnið. Í vestur sést Litli-Meitill þar norðanvið er Stóri-Meitill síðan er Lágskarð. Austan við Lágskarðið er Stóra-Sandfell. Sunnan við það er Sanddalur og Sanddalahlíðar og loks Langahlíð. Forn þjóðleið, Lágskarðsleið, var upp með Lönguhlíð norður um Lágskarð í átt að Kolviðarhól og fer Suðurlandsvegur yfir götuna neðst í Hveradalabrekkunni. Aka verður sömu leið til baka. Vegalengd 3-4 kílómetrar Kort Blað 37 Hengill.