Þorlákshöfn að Nesi
Ekið er í gegnum þorpið í Þorlákshöfn, eftir aðalgötunni Óseyrarbraut til enda. Síðan beygt til vinstri inn á Egilsbraut og til vinstri eftir Hafnarbergi, framhjá sundlauginni að fiskeldisstöð sem stendur niður við sjóinn. Ekið er þar um hlað inn á slóða sem liggur vestur með ströndinni. (Skammt ofan við fiskeldið er upphleyptur vegur sem ætla mætti að væri upphaf að slóðanum en svo er ekki). Slóðinn verður ógreinilegri eftir því sem vestar er haldið og sumstaðar er rétt að stoppa og skoða framhaldið til að gera ekki marga slóða. Slóðinn liggur mjög nálægt sjónum á nokkuð grónu landi. Örnefni eru nokkur. Keflavík austast, Háaleiti, Viðarhellir við Bjarnarvík, Strákahæðir. Slóðinn verður greinilegri eftir að vestar dregur að Nesvita. Síðan liggur leiðin um land Ness og þaðan upp á Krísuvíkurveg. Veglengd um 20 kílómetrar. Kort. Blað 38 Eyrarbakki.