Arctic Trucks Island

Suðurlandsvegur - Grafningsháls

 
Ekið er af Suðurlandsvegi við bæinn Gljúfurholt í Ölfusi í norður. Þegar komið er innundir fjöllin er Sogn á vinstri hönd, síðan er farið yfir Gljúfurá framhjá bænum Gljúfri. Svo liggur vegurinn uppá mel innundir krikanum við Ingólfsfjall. Hér er beygt til norðurs upp melinn í gegnum hlið á girðingu hjá raflínu sem kemur norðan af Grafningshálsi. Slóðin liggur upp melinn á milli tveggja áa Hvammsá austan við og Æðargil að vestan. Slóðin svegir síðan niður að Æðargilinu og eftir því um Djúpgrafning á Grafningsháls (Einnig er hægt að fara með raflínunni um Kallbak)og erum við þá á vatnaskilum. Síðan liggur leiðin niður að norðan verðu á veg við bæinn Stóra-Háls í Grafningi. Kort Blað nr.37 Hengill Vegalengd 7-8 kílómetrar frá vegi við hliðið og á veg í Grafningi.
 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir