Suðurlandsvegur - Hraun
Ekið er af Suðurlandsvegi, veg til norðurs skammt fyrir ofan Skíðaskálann í Hveradölum (GPS N64 01 128 W21 22 866). Einnig er hægt að fara inn afleggjaran á Skíðaskálanum í Hveradölum og áfram inná gamla veginn upp með Stóra Reykjafelli í austur að fyrnefndum vegi. Síðan er ekið á gamla Hellisheiðarveginum austur með ás sem gengur austur frá Stóra Reykjafelli. Hér er svokölluð Flengingarbrekka. Þegar komið er austur fyrir ásinn er beygt inn á slóða í norður og farið upp brekkur. Þegar upp er komið er sveigt í vestur inn fyrir gíghóla sem mikið efni hefur verið tekið úr. Síðan er sveigt til norðurs og farið þvert fyrir Hellisskarð að Skarðsmýrarfjalli. Síðan er ekið með hlíðum Skarðsmýrarfjalls í austurátt. Ekið er framhjá nokkrum skíðaskálum. Leið þessi er kölluð vegurinn milli hrauns og hlíða. Brátt er komið að hálsi sem gengur austur úr hlíðinni og skiptast þar leiðir.
Innstidalur: Til vinstri er farið ef fara á í Innstadal. Er þá farið inn með hlíðinni fyrir ofan svokölluð Þrengsli í Miðdal. Tveir skálar eru hér, báðir læstir og í einkaeigu. Jarðhiti er í dalnum og fyrir ofan innri skálann er einn öflugasti gufuhver landsins. Við hann hafa menn baðað sig í volgum læk. Varasamt er að ferðast um hverasvæði þegar snjór er yfir, því hitinn hefur brætt stórar hvelfingar í snjóinn, þó ekki sjáist það á yfirborði.