Arctic Trucks Island
 

Myndagallerý »

 

Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í breytingar fyrir Nissan Patrol

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.

 



44" breyting

Fyrir þá sem vilja komast leiðar sinnar við hvaða aðstæður sem er, er 44" breytingapakkinn málið. Jeppinn er hækkaður upp bæði á fjöðrun og yfirbyggingu og útlitsbreyting verður mikil við breiða brettakanta og upphækkunina. 44" dekkin skila miklu floti fyrir snjóakstur og breyta bílnum í sannkallað torfærutæki.

  • Bíllinn hækkar undir lægsta punkt
  • Mýkri akstur á grófum vegum
  • Mikið flot í snjóakstri 
  • Útlitsbreyting
  • Fjalla- og jöklaferðir að vetrarlagi

Aukahlutir fyrir Nissan Patrol:

  • Driflæsing í framhásingu (ARB loftlæsing)
  • Auka olíutankur með rofa og dælu
  • Ryðfríar póleraðar grillgrindur með festingum fyrir aukaljós
  • Plólýhúðuð grillgrind með drullutjakkssætum
  • Loftdælusett með slöngu fest í bílinn (rofi, relay 16 Amp)
  • Kastarar KC130W - króm/ryðfrítt (punktljós eða dreifður geisli)
  • 3" pústkerfi
  • Húddhlífar
  • Gluggavindhlífar
  • Ljósahlífar
  • Glugga-, húdd- og ljósahlífar í setti
  • Vindskeið á afturhlera í sama lit og bíllinn (gengur ekki með stiga á afturhlera)
  • Stigi á afturhlera (gengur ekki með vindskeið)
  • Dráttarbeisli, prófíl með kúlu og drullutjakkssætum
  • Negling á dekkjum (12/15 naglar)
  • Toppgrind, langbogar
  • Toppgrind úr áli með festingum fyrir skóflu og drullutjakk
  • Álbox á toppgrind/i í farangursgeymsluna
  • Álkassi á afturhlera
  • Gólffestingar (2x0,5 m) úr áli með 4 færanlegum festingum
  • Spilfesting að framan
  • Lækkun á gólfi fyrir farþega í 3ju sætaröð
  • Raftengi framan og aftan fyrir spil
  • Spil, Come-Up 9000i (4100 kg)
  • Skriðgír

Kynnu þér nánar aukahlutaúrvalið okkar undir vöruflokkunum hér vinstra meginn á síðunni.

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.


Íhlutir breytingapakkans

  • Dick Cepek 44x18,5/15 MRT dekk
  • 15x16" stálfelgur með kantlás
  • Átaksmælir
  • Málaðir brettakantar
  • Gangbretti og gangbrettafestingar
  • Aurhlífar
  • Hraðamælabreytir
  • 160 mm hækkun á fjöðrun fr./aftan
  • HT-gormar og Koni demparar
  • Stífu- og þverstífusíkkanir framan/aftan
  • Lenging á drifskafti að aftan
  • Stýrisarmur
  • Tvöfaldur liður í drifskaft
  • Stillanleg togstöng 
  • Úrklipping úr hjólskálum framan/aftan
  • Drifhlutföll (5,13:1)
  • Slökkvitæki og sjúkrapúði
  • Hjólastilling
  • Sérskoðun og vigtun
  • Arctic Trucks krómmerki á afturhlera 




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir