Arctic Trucks Island

Leiðangur á Segulpólinn á vegum hins geysivinsæla sjónvarpsþáttar Top Gear árið 2007 vakti heimsathygli, en Jeremy Clarkson og félagar fóru þá mögnuðu ferð á Hilux bílum sem Arctic Trucks hafði breytt. Árangurinn var slíkur að leitað var til Arctic Trucks eftir breytingum á fjórum Toyota Hilux fyrir leiðangur á Suðurpólinn sem farinn er undir heitinu Amundsen Omega3 South Pole Race 2008.

 

Bílarnir voru komnir til Höfðaborgar í Afríku í lok nóvember en þaðan var flogið með þá yfir til Nova þar sem ökuferðin hófst. Með í för eru tveir starfsmenn frá Arctic Trucks. Báðir eru þeir þaulvanir akstri við erfiðar aðstæður. Annar mun fylgja þeim sem eru skíðamönnunum til aðstoðar og hinn fylgir kvikmyndatökuliði BBC, en leiðangurinn er að sjálfsögðu myndaður samviskusamlega.

Fyrir þetta mikla verkefni varð Toyota Hilux pallbíl enn og aftur fyrir valinu með nýju þriggja lítra einbunu díselvélina sem grunn til að byggja á. Þetta farartæki er létt, bilar sjaldan, hefur góða burðargetu og er knúið afar sparneytinni vél sem uppfyllir nýjustu útblástursstaðla Evrópusambandsins (EURO IV). En til þess að fjórhjóladrifið farartæki geti ekið á mismunandi snjóalögum þarf það að vera á loftlitlum, en mjög stórum og belgmiklum dekkjum, svo það fljóti og nái viðspyrnu.


 

20 ÁRA REYNSLA Í BREYTINGUM

Arctic Trucks hefur 20 ára reynslu af því að breyta farartækjum fyrir snjóakstur og setur 44 tommu dekk á þessa Hilux bíla, endurgerir fjöðrunina og styrkir drifbúnaðinn. Til þess að koma dekkjunum fyrir er framfjöðrunin færð niður um 5 sentimetra og fram um 4 sentimetra. Þá er henni lyft enn aðra 5 sentimetra að framan og aftari fjöðrunin færð 16 sentimetra aftur og hækkuð um 10 sentimetra. Að auki eru hin stóru bretti sérsmíðuð til að hýsa nýju dekkin og loks er bætt við mjög stórum högghlífum. Síðan er 100% læst mismunadrif sett á báða öxlana og gírhlutföllin færð niður. Skriðgír er settur á alla bílana svo þeir getifarið löturhægt en allir bílarnir munu draga vagna sem bera allt að tveimur tonnum af vistum hver. Þar að auki verða þessi farartæki búin sprungufallvörn, auka eldsneytistönkum, stærri rafgeymum, vararafkerfum, hiturum svo og samskipta- og staðsetningarbúnaði. Þess má geta, að bílarnir fjórir munu ekki koma til baka því þeir hafa verið seldir rússneskri rannsóknarstöð á svæðinu.


 

NÆR ÖLD LIÐIN FRÁ SÍÐUSTU KEPPNI ...

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Arctic Trucks útbýr bíla til að aka um Suðurskautslandið. Í lok ársins 1997 sendi fyrirtækið þangað tvo mikið breytta Land Cruieser 80 til sænskra vísindamanna sem voru að störfum í Antarctica. Amundsen Omega3 gönguskíðakeppnin á Suðurpólinn 2008 er sú fyrsta sem efnt er til síðan þeir Scott og Amundsen komu þangað fyrir næstum einni öld. Norski landkönnuðurinn Roald Amundsen komst þangað í desember 1911, en enski keppinautur hans, Robert Falcon Scott, um mánuði síðar.
Að lokinni tveggja vikna strangri þjálfun keppenda í þjálfunarbúðum í Noregi tók við níu daga hæðaraðlögun við komuna til Suðurskautslandsins áður en hópurinn var fluttur að upphafspunkti
keppninnar sem er um 800 km frá Suðurpólnum.
Þrjú lið keppa um það hvert þeirra nái fyrst á Suðurpólinn og liggur leiðin yfir mestu ísbreiðu jarðar. Tveir bílanna flytja þá sem eru kappliðunum til aðstoðar en hinir tveir bílarnir bera kvikmyndatökumennina. Leiðin fram og til baka er um 5000 km.

 

VÍKINGARNIR VEKJA ÖRYGGISKENND

Það reynir mikið á bæði menn og bíla. Ein þrekraunin er að finna leið upp fjöllin sem rísa meira en 3000 metra fyrir ofan rússnesku rannsóknarstöðina Nova og aka þar um ókannaðar slóðir í 25 til 30 stiga frosti. Ekki bætir úr skák, að loftþrýstingurinn er afar lár þegar komið er í þessa hæð.
Þykir mönnum mikið öryggi í því að fararskjótarnir skuli hafa verið útbúnir til ferðarinnar af fyrirtæki í landi þar sem er að finna aðstæður svipaðar þeim sem mæta Pólförunum. Sömuleiðis finna menn til öryggistilfinningar að með í för skuli vera harðgerðir víkingar sem eru ýmsu vanir eftir jöklaferðir.
Starfsmenn Arctic Trucks sem hér um ræðir eru Hjalti Vigfús Hjaltason og Gísli Jónsson.
Hjalti Vigfús hóf störf sem verkstjóri á verkstæði Arctic Trucks 1997. Hann hefur verið haldinn bíladellu frá táningsaldri, er þaulvanur að aka við ólíkar aðstæður og eru fjórhjóladrifnir bílar í miklu uppáhaldi hjá honum. Hann tók þátt í ferð Top Gear á Norðurpólinn sem ökumaður og bifvélavirki.
Gísli hefur starfað hjá Arctic Trucks síðan 1998 og er þar tæknistjóri. Löngu áður en hann hóf störf hjá fyrirtækinu var hann orðinn ákafur jeppaáhugamaður. Hann hefur tekið þátt í ótal ferðum um landið þvert og endilangt á öllum árstímum og þá oft sem leiðsögumaður. Ferðirnar hafa iðulega verið farnar um erfiðustu slóðir og í öllum veðrum. Í leiðangrinum á Suðupólinn kemur reynsla Gísla honum og ferðafélögunum að góðum notum og víst er að í þessari ferð rætast hans viltustu draumar í bílasportinu.

 

Hér er hægt að lesa dagbókarfærslur íslensku leiðangursmannanna á íslensku.

 

Sértök heimasíða var sett í loftið í tilefni af þessari ferð, en þar er að finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um leiðangurinn og einnig eru myndir og dagbókarfærslur settar þar inn jafnóðum og þær berast frá Suðurpólnum. Heiðmasíðan er www.antarcticachallenge.com.




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir