Keppnishjól
Munurinn á sigri og ósigri felst í því hversu vel hjólin liggja í beygjunum. Heimsmeistaratitlar hafa margoft unnist á YZ450F og ef að þú hefur metnað til mikilla sigra þá er þetta örugglega hjólið fyrir þig.
YZ250F er hannað til að svínliggja í beygjunum. Létt álgrindin og frábær fjórgengisvélin skila þér toppframmistöðu alla leið í mark.
Enduro hjól gerast ekki sterkari en WR450F hjólið. Álgrindin er einstaklega sterk og endurhönnuð vélin skilar svo miklu afli að ekki fer á milli mála að þessu hjóli er alvara!
WR250F hjálpar þér að uppgötva hæfileika þína í mótorsportinu, hvort sem að þú ert áhugamaður eða atvinnumaður!
Í 2009 árgerð þessa hjóls hefur álgrindin verið endurbætt , léttar felgurnar auðvelda meðhöndlun hjólsins og frammistöðu fjöðrunarkerfisins.
YZ125 er þekkt fyrir léttleika og snerpu og vélin svarar kallinu strax.
Ef þú sérð framtíð í mótorkrossi, þá er Yamaha YZ85 rétta hjólið til að hefja ferilinn á. Hjólið er aflmikið og með frábæra aksturseiginleika.
TT-R125 er tilvalið sem fyrsta hjól þeirra sem eru að byrja í þessari íþrótt. Það er hannað eins og keppnishjól en er líka mjög þægilegt í notkun.
Þetta fallega hjól er hannað með nýliða í sportinu í huga, og býður samhliða upp á útlit keppnishjólanna og einfaldleika í notkun.
TT-R50E er ætlað börnum á aldrinum 4 til 7 ára. Hjólið er þægilegt í notkun, með rafmagns starti og sjálfskiptum gírkassa.
PW80 er upphald ungra ökumanna og einnig forráðamanna þeirra, þar sem hjólið er einfalt og viðhaldslítið.
PW50 tvígengishjólið er draumur allra ungra barna! Yamaha hefur hannað og framleitt hjól fyrir börn í yfir 20 ár og þetta hjól byggir á þeirri reynslu.