Ástandsskoðun - fjórhjól
SMURNING OG VETRARSKOÐUN FYRIR FJÓRHJÓL
Arctic Trucks býður eigendum Yamaha fjórhjóla upp á vetrarskoðun til að tryggja að hjólið sé tilbúið í slaginn í vetur.
Innifalið í skoðuninni er smurning og ítarleg skoðun á ástandi tækisins. Eigandi fær að skoðun lokinni í hendur ástandsskýrslu
þar sem allt sem talið er þarfnast lagfæringar er skráð. Við getum að sjálfsögðu gert tilboð í lagfæringar, sé þess óskað.
INNIFALIÐ Í SKOÐUN
Eftirfarandi vinna og efni er innifalin í vetrarskoðuninni:
Skipt um olíu og olíusíu
Skipt um olíur á drifum
Ljós yfirfarin
Bremsubúnaður yfirfarinn
Spindlar að framan smurðir og aðrir smurkoppar
Púst yfirfarið
Rafgeymar yfirfarnir
Stýrisbúnaður yfirfarinn
VERÐ VETRARSKOÐUNAR kr. 27.200,-
BÓKAÐU TÍMA
Hafðu samband við okkur í síma 540 4900 til að bóka tíma í vetrarskoðun.
Einnig geturðu sent póst á bokanir@arctictrucks.is og við finnum fyrir þig tíma sem hentar.